Franski sundmaðurinn Leon Marchand vann tvenn gullverðlaun á Ólympíuleikunum í París í gærkvöldi.
Hann byrjaði á því að vinna gullverðlaun í 200 metra flugsundi og innan við tveimur tímum seinna vann hann önnur gullverðlaun, þá í 200 metra bringusundi og hann setti Ólym´píumet í báðum greinum.
Marchand er 22 ára gamall og er þrefaldur Ólympíumeistari í ár en hann vann einnig 400 metra fjórsund og setti Ólympíumet þar.