Ásakar Kínverja um svindl

Pan Zhanle eftir úrslitasundið. Zhanle setti nýtt heims- og Ólympíumet.
Pan Zhanle eftir úrslitasundið. Zhanle setti nýtt heims- og Ólympíumet. AFP/Jonathan Nackstrand

Ástralski sundþjálfarinn Brett Hawke segir kínverska sundkappann Pan Zhanle sekan um notkun ólöglegra lyfja.

Zhanle var heilli sekúndu fljótari en næstu menn þegar hann tryggði sér gullverðlaun í hundrað metra skriðsundi og bætti eigið heimsmet á Ólympíuleikunum í París á miðvikudaginn.

Hawke er sjálfur Ólympíufari og í myndbandi á Instagram síðu hans segist hann vera reiður eftir sundið.

„Ég hef fylgst með besta sundfólki heims í þrjátíu ár og er sérfræðingur í íþróttinni. Ég er reiður vegna þess að þú getur ekki verið heilli líkamslengd á undan næsta manni í hundrað metra skriðsundi. Það er ekki mögulegt fyrir nokkurn mann“, segir Hawke meðal annars.

Eldræðu Hawke má sjá hér að neðan.

View this post on Instagram

A post shared by Brett Hawke (@hawkebr)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert