Sigurmark frá Rodman í framlengingu

Trinity Rodman skorar sigurmarkið gegn Japan í dag.
Trinity Rodman skorar sigurmarkið gegn Japan í dag. AFP/Geoffroy van der Hasselt

Bandaríkin tryggðu sér í dag sæti í undanúrslitunum í knattspyrnu kvenna á Ólympíuleikunum í Frakklandi með því að sigra Japan í framlengdum leik, 1:0.

Trinity Rodman skoraði sigurmarkið í lok fyrri hálfleiks framlengingarinnar, eftir sendingu frá Crystal Dunn.

Í undanúrslitum leika Bandaríkin við sigurvegarana úr viðureign Kanada og Þýskalands sem mætast síðar í dag.

Í hinum tveimur undanúrslitaleikjunum í dag og kvöld leikur Frakkland við Brasilíu og Spánn mætir Kólumbíu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert