Fékk gullmedalíu og demantshring

Falleg stund í París.
Falleg stund í París. AFP/Arun Sankar

Hin kínverska Huang Ya Qiong átti ógleymanlegan dag í gær.

Hún byrjaði á því að verða Ólympíumeistari í tvenndarleik í badminton á leikunum í París er hún bar sigur úr býtum með liðsfélaga sínum Si Wei Zheng gegn Kim Won-ho og Heong Na-eun frá Suður-Kóreu í úrslitum. 

Kærasti hennar Liu Yuchen, sem keppir einnig fyrir Kína á leikunum, fagnaði með nýja Ólympíumeistaranum og skellti sér síðan á skeljarnar og bað hennar.

Qiong sagði já og fékk því ólympíugullmedalíu um hálsinn og demantshring á baugfingur sama daginn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert