Heimsmethafinn náði í fyrsta gullið

Yaroslava Mahuchikh er Ólympíumeistari.
Yaroslava Mahuchikh er Ólympíumeistari. AFP/Ben Stansall

Úkraínski hástökkvarinn Yaroslava Mahuchikh náði í sín fyrstu gullverðlaun á Ólympíuleikunum er hún bar sigur úr býtum í hástökki á Stade de France í París í kvöld.

Mahuchikh sló heimsmetið í greininni er hún stökk 2,10 metra á Demantamóti í síðasta mánuði. Hún var nokkuð frá þeim árangri því sú úkraínska stökk hæst slétta tvo metra.

Nicola Olyslagers frá Ástralíu stökk einnig tvo metra en felldi hæðina tvisvar á meðan Mahuchikh tókst að stökkva hana í fyrstu tilraun. Fékk sú ástralska því silfur. 

Iryna Gerashenko frá Úkraínu og Elenor Patterson frá Ástralíu deila bronsverðlaunum en þær stukku báðar 1,95 metra.  

Mahuchikh keppti á sínum fyrstu Ólympíuleikum í Tókýó fyrir þremur árum og hlaut þá bronsverðlaun. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert