Norsku stjörnurnar hans Þóris hágrétu

Nora Mørk ein skærasta stjarna Noregs grætur á bekknum.
Nora Mørk ein skærasta stjarna Noregs grætur á bekknum. AFP/Damien Meyer

Óhugnanlegt atvik átti sér stað í leik Noregs og Þýskalands í handboltakeppni í kvennaflokki á Ólympíuleikunum í París í gær.

Undir lok leiks féll Vilde Ingstad í gólfið og öskraði af sársauka. Í kjölfarið sló þögn í handboltahöllinni í París.

Virtist Ingstad sárþjáð og voru liðsfélagar hennar í áfalli á hliðarlínunni og grétu. Ingstad mun væntanlega ekki spila meira á mótinu, en þó er ekki enn ljóst hve alvarleg meiðslin eru.

„Norsku stelpurnar eru grátandi á bekknum og eru óhuggandi. Nora Mørk hágrætur og Stine Bredal Oftedal heldur utan um hana,“ sagði Patrick Sten Rowlands er hann lýsti leiknum í norska sjónvarpinu.

Vilde Ingstad er leidd af velli. Liðsfélagar hennar eru í …
Vilde Ingstad er leidd af velli. Liðsfélagar hennar eru í áfalli á bekknum. AFP/Damien Meyer
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert