Rapparinn skrautlegi stal senunni

Snoop Dogg var vel klæddur í dag.
Snoop Dogg var vel klæddur í dag. AFP/Henrik Montgomery

Rapparinn Snoop Dogg hefur verið áberandi á Ólympíuleikunum en hann hefur sótt ófáa viðburðina undanfarna daga.

Bandaríkjamaðurinn lét sig ekki vanta á keppni í hlýðniæfingum í hestakeppninni í dag. Þá var hann klæddur eins og knapi, þrátt fyrir að vera hræddur við hesta.

„Ég er hræddur við hesta og ég myndi aldrei ríða sjálfur,“ sagði Snoop Dogg við NBC, en hann vinnur fyrir bandaríska miðilinn á Ólympíuleikunum.

„Ég hef samt áhuga á hestum og ég vil gefa þeim gulrætur og epli, svo þeir verði ekki svangir á meðan þeir keppa,“ bætti rapparinn við.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert