Sá efsti vann eftir mikla spennu

Scottie Scheffler er Ólympíumeistari 2024.
Scottie Scheffler er Ólympíumeistari 2024. AFP/Emmanuel Dunand

Bandaríkjamaðurinn Scottie Scheffler bar sigur úr býtum í golfi á Ólympíuleikunum í París eftir æsispennandi lokahring í dag.

Scheffler, sem er efsti maður heimslistans, átti glæsilegan hring í dag, lék á 62 höggum, níu höggum undir pari. Hann lauk leik á 19 höggum undir pari og lék einu höggi betur en Tommy Fleetwood frá Bretlandi.

Hideki Matsuyama frá Japan og Frakkinn Victor Pérez urðu næstir á 17 og 16 höggum undir pari.

Xander Schauffele, sem vann Opna breska meistaramótið á dögunum, átti slakan lokahring, lék á 73 höggum, og var að lokum ekki nálægt efstu mönnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert