Hin ástralska Noémie Fox sigraði í nýjustu grein Ólympíuleikanna, svo kölluðum kajak-spretti.
Fox kemur úr mikilli íþróttafjölskyldu en faðir hennar er fyrrum heimsmeistari og móðir hennar bronsverðlaunahafi á Ólympíuleikum. Þá hefur eldri systir hennar og liðsfélagi, Jessica Fox, þegar unnið til tvennra gullverðlauna á leikunum.
Finn Butcher frá Nýja-Sjálandi sigraði í karlaflokki.