Datt næstum á myndatökumann og komst ekki í úrslit (Myndskeið)

Holly Bradshaw.
Holly Bradshaw. AFP/Ben Stansall

Breski stangarstökkvarinn Holly Bradshaw, sem vann bronsverðlaun á leikunum í Tókýó árið 2019, komst ekki í úrslit á Ólympíuleikunum í París í ár.

Bradshaw er 32 ára gömul og hefði verið fyrsta konan til þess að komast í úrslit í stangarstökki fjóra Ólympíuleika í röð.

Hún reyndi að komast yfir 4,40 metra en það tókst ekki. Hún hefur mest farið 4,70 metra á þessu ári.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert