Ástralinn Nina Kennedy er ólympíumeistari í stangarstökki kvenna eftir stökk upp á 4,90 metra í París í kvöld.
Kennedy vann þar með sitt fyrsta ólympíugull.
Í öðru sæti var Katie Moon frá Bandaríkjunum með stökk upp á 4,85 metra og í þriðja sæti Alysha Newman frá Kanada með jafnhátt stökk.