Heimakonur í undanúrslit

Franska liðið er komið í undanúrslit.
Franska liðið er komið í undanúrslit. AFP/Damien Meyer

Frakkland er komið í undanúrslit í körfubolta kvenna á Ólympíuleikunum í París eftir sigur á Þýskalandi, 84:71, í dag. 

Franska liðið mun mæta Belgíu í undanúrslitum. 

Frakkland fór betur af stað og var yfir í hálfleik með tólf stigum, 45:33. 

Frakkar voru einnig sterkari í þirðja leikhluta og voru 15 stigum yfir eftir hann, 66:49. 

Þýska liðið vann síðasta leikhlutann með 22 stigum gegn 18 en það dugði skammt. 

Marine Johannes var stigahæst hjá Frökkum með 24 stig en hjá Þýskalandi skoraði Nyara Sabally 20 stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert