Gestgjafarnir í Frakklandi unnu öruggan 3:0-sigur á Póllandi í blaki karla í úrslitaleiknum um gullið á Ólympíuleikunum í París í dag.
Þetta eru aðrir leikarnir í röð sem Frakkland vinnur til gullverðlauna í blaki karla.
Frakkaland vann fyrstu hrinuna af öryggi, 25:19. Frakkar voru líka með mikla yfirburði í annarri hrinu og unnu þeir hana, 25:20.
Þriðja og síðasta hrinan var jafnari. Pólland komst yfir 17:15 en þá gáfu Frakkar í og enduðu á því að vinna 25:23.
Jean Patry var stigahæstur í liði Frakka með 17 stig. Hjá Pólverjum var það Bartosz Kurek með 10 stig.
Í leiknum um bronsið í blaki karla áttust við Bandaríkin og Ítalía. Þar höfðu Bandaríkin betur, 3:0, og tryggðu þar með bronsið.