Fyrsti barnshafandi gullverðlaunahafinn

John Stubbs og Jodie Grinham við keppni á Paralympics-leikunum í …
John Stubbs og Jodie Grinham við keppni á Paralympics-leikunum í Ríó de Janeiro árið 2016. AFP/Yasuyoshi Chiba

Bretinn Jodie Grinham braut blað í sögu Paralympics-leikanna þegar hún vann til gullverðlauna á leikunum í París í gær. Grinham er barnshafandi, komin sjö mánuði á leið með sitt annað barn.

Þar með varð hún fyrsti keppandinn á Paralympics-leikum sem stendur uppi sem sigurvegari með barn undir belti.

Grinham keppir í bogfimi og vann til gullverðlauna í flokki blandaðra liða ásamt Nathan McQueen í gær.

Degi áður hafði hún unnið til bronsverðlauna í einstaklingskeppni kvenna og varð þá fyrsti ólétti verðlaunahafinn á Paralympics svo vitað sé.

Grinham keppti einnig á Paralympics-leikunum í Ríó de Janeiro árið 2016 og vann þá til silfurverðlauna í flokki blandaðra liða ásamt John Stubbs.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka