Sigurður og Agnes sigruðu í innitvíþraut

Reykjavíkurleikunum í innitvíþraut lauk rétt eftir hádegi í dag. Keppnin fór þannig fram að fyrst syntu þátttakendur 500 metra í Laugardalslaug og hlupu svo strax í kjölfarið 5 km á hlaupabretti í World Class. Í meðfylgjandi myndskeiði má sjá svipmyndir frá keppninni (Myndataka og klipping: Bent Marinósson).

Sigurvegari í kvennaflokki var Agnes Kristjánsdóttir, ÍR, á tímanum 28:18 en í öðru sæti var Guðrún Fema Ágústsdóttir, Ægi, á 29:13 og því þriðja Ebba Særún Brynjarsdóttir, 3SH, á 30:01. Als luku 10 konur keppni í dag.

Í karlaflokki luku 31 þátttakandi við þrautina. Sigurður Örn Ragnarsson, Ægi, sigraði á tímanum 24:16 en rétt á eftir honum og í öðru sæti varð Stefán Guðmundsson, 3SH, á 24:30. Í þriðja sæti var Steinn Jóhannsson 3SH á tímanum 25:47.

Keppni í innitvíþrautinni gekk mjög vel að sögn aðstandenda og kláruðu nær allir þátttakendur þrautina. Eðlilega vöktu keppendur mikla athygli í World Class þegar þeir æddu inn í salinn úr sundlauginni og byrjuðu að hlaupa á um 50 hlaupabrettum sem voru frátekin fyrir þá.

Heildarúrslit má finna hér
Aldursflokkaúrslit má finna hér.

Frá keppni í innitvíþraut á Reykjavíkurleikunum 2013.
Frá keppni í innitvíþraut á Reykjavíkurleikunum 2013. Bent Marinósson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert