Bræður börðust í hjólasprettskeppni

Hjólasprettskeppni Reykjavíkurleikanna fór fram á Skólavörðustígnum í kvöld. Í úrslitum í karlaflokki börðust bræðurnir Ingvar og Óskar Ómarssynir um sigurinn. Bræðurnir háðu einnig einvígi í úrslitunum í fyrra og hafði Ingvar þá sigur eins og í kvöld.  Ingvar var því kjörinn brekkusprettsmeistari Íslands í karlaflokki 2014. Í þriðja sæti var Emil Þór Guðmundsson. Í meðfylgjandi myndskeiði má sjá bræðurna berjast í brekkunni. Hér eru fregnir af keppninni í kvennaflokki.

Ingvar Ómarsson og Óskar Ómarsson berjast um sigurinn í brekkusprettskeppni …
Ingvar Ómarsson og Óskar Ómarsson berjast um sigurinn í brekkusprettskeppni Reykjavíkurleikanna 2014. Sportmyndir.is
Verðlaunahafar í brekkusprettskeppni Reykjavíkurleikanna 2014.
Verðlaunahafar í brekkusprettskeppni Reykjavíkurleikanna 2014. Sportmyndir.is
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert