Keppni í listhlaupi á skautum hófst í morgun með keppni í stuttu skylduprógrammi í þremur flokkum. Flokkarnir Advanced novice, junior ladies og senior ladies munu ljúka keppni á morgun.
Eftir hádegishlé í Skautahöllinni í Laugardal voru þrír flokkar á dagskrá RIG sem keppa einungis með frjálst prógramm og réðust því úrslit í þeim flokkum í dag. Grunnstig stúlkna hóf keppni en þetta er einn stærsti keppnisflokkur mótsins með ellefu keppendur skráða. Aldursbil keppenda er frá 10 til 12 ára.
Keppendur frá SR eru í meirihluta í þessum flokki en af þeim 11 keppendurm sem voru skráðir voru átta frá SR. Margir keppendur eru á svipuðu róli og keppnin því æsispennandi en það var skautari frá Akureyri, Berglind Inga Benediktsdóttir, sem sigraði með 27,64 stigum, í öðru sæti varð Elva Ísey Hlynsdóttir úr Fjölni með 26,17 stig og þriðja Indíana Rós Ómarsdóttir SR með 21,62 stig. Mjótt var á munum milli þriðja og fimmta keppanda eða 0,46 stig.
Á eftir þeim komu keppendur í miðstigi stúlkna. Fimm keppendur voru skráðir til leiks og var einnig mjótt á munum milli keppenda í þessum flokki eða um fjögur stig. Úrslit urðu þau að Rakel Sara Kristinsdóttir úr Fjölni sigraði með 24,65 stig. Önnur varð Vilborg Gróa Brynjólfsdóttir úr SR með 23,60 stig og þriðja Hugrún Helga Einarsdóttir, einnig úr SR, með 22,27 stig.
Keppni í miðstigi kvenna rak svo lestina í dag. Í þessum flokki eru afar sjóaðir keppendur 15 ára og eldri. Tveir keppendur mættu til leiks í dag, báðar úr SR. Eftir að stúlkurnar höfðu skautað stóð Edda Steinþórsdóttir upp sem sigurvegari með yfirburðum og fékk að launum 36,38 stig og önnur varð Anna Björk Benjamínsdóttir með 23,38 stig.
Engir áhorfendur voru leyfðir á keppninni en fulltrúar félaga og aðrir keppendur sátu í stúkunni. Keppni hefst svo aftur á morgun, frekari upplýsingar má finna á rig.is.