Crossfit-keppnin á Reykjavíkurleikunum verður með breyttu sniði þar sem tíu keppendur munu keppa, fimm karlar og fimm konur.
Keppnin fer fram á föstudaginn 5. febrúar, en hún verður sýnd í beinni útsendingu á RÚV2 klukkan 19:30. Vegna aðstæðna var ekki hægt að halda stórt alþjóðlegt mót eins og átti að gera, en í ár er þetta boðsmót.
Keppendur í kvennaflokki eru:
Sandra Arnardóttir æfir í Crossfit Sport sigraði í fyrra og hefur því titil að verja.
Hjördís Óskarsdóttir æfir í Crossfit XY, hefur keppt með liði á heimsleikunum í Crossfit.
Jóhanna Júlíusdóttir æfir í Crossfit Suðurnes, hefur keppt með liði á heimsleikunum í Crossfit.
Tanja Davíðsdóttir æfir í Crossfit Reykjavík
Alma Káradóttir æfir í Sporthúsinu
Keppendur í karlaflokki eru
Björgvin Karl Guðmundsson hefur sex sinnum keppt á heimsleikunum og tvisvar sinnum unnið til verðlauna á Crossfit heimsleikunum. Björgvin æfir í Crossfit Hengil í Hveragerði.
Frederik Ægidius er frá Danmörku en býr hér á landi og æfir í Crossfit Reykjavík. Frederik hefur farið fimm sinnum Crossfit heimsleikana.
Stefán Helgi Einarsson æfir í CrossFit Reykjavik hefur keppt á heimsleikunum.
Hafsteinn Gunnlaugsson æfir í WorldFit.
Haraldur Holgersson æfir í CrossFit XY, hefur keppt tvisvar sinnum á Heimsleikunum í unglingaflokki.
Það verður spennandi að fylgjast með Frederik og Björgvini Karli keppa, en þeir þykja líklegir sigurvegarar.
Allar upplýsingar má finna hér á facebook viðburði crossfit keppninnar.