Kastarinn Guðni Valur Guðnason vann öruggan sigur í kúluvarpi á Reykjavíkurleikunum í Laugardalshöllinni í dag. Guðni kastaði lengst 18,81 metra og bætti eigið með um rúma 20 sentímetra.
Aðalgrein Guðna er kringlukast, þar sem hann stefnir á keppni á Ólympíuleikunum í Tókýó í ár. Kristján Viktor Kristinsson varð annar með 15,66 metra og Tómas Gunnar Gunnarsson Smith kastaði 15,08 metra.
Kristinn Torfason stökk 6,96 metra í langstökki og fagnaði sigri. Ísak Óli Traustason stökk 6,74 metra.