„Þetta var allt í lagi miðað við hvar ég er á tímabilinu,“ sagði Erna Sóley Gunnarsdóttir sem vann kúluvarp á frjálsíþróttamóti Reykjavíkurleikanna í Laugardalshöll í kvöld.
Erna kastaði 17,35 metra í dag en Íslandsmetið hennar er 17,92 metrar sem hún gerði í Birmingham árið 2023.
„Það er alltaf mjög skemmtilegt að keppa á Íslandi og þetta er mjög flott mót en ég stend mig betur þegar ég keppi erlendis og er með samkeppni. Að sjá aðra kasta langt lætur mig alltaf kasta lengra,” sagði Erna í viðtali við mbl.is eftir mótið.
Erna átti gott ár í fyrra þegar hún varð fyrsta íslenska konan til að keppa í kúluvarpi á Ólympíuleikum.
Hvaða mót stefnir þú á í ár?
„Ég stefni á EM innanhúss og HM í ár og núna er ég á þeim stað að markmiðið er ekki bara að komast inn heldur að komast lengra.“
Ertu með eitthvað markmið í tölum?
„Já, en ekkert sem ég er tilbúin í að deila strax.“