Tvö Íslandsmet á átta dögum

Baldvin Þór Magnússon sló eigið Íslandsmet í dag.
Baldvin Þór Magnússon sló eigið Íslandsmet í dag. mbl.is/Karítas Sveina Guðjónsdóttir

Frjálsíþróttamaðurinn Baldvin Þór Magnússon byrjaði árið af miklum krafti og sló eigið Íslandsmet í 1.500 metra hlaupi í Laugardalshöll í dag.

Þetta var annað Íslandsmet hans í ár en hann sló metið í 3.000 metra hlaupi 19. janúar í Sheffield. 

„Mér líður mjög vel, tvö Íslandsmet á held ég átta dögum er frábær tilfinning og að gera það hérna á Íslandi er snilld, það var frábær stemning í höllinni og þetta er flott mót,“ sagði Baldvin í viðtali við mbl.is eftir mótið en þetta er annað árið í röð sem hann slær Íslandsmetið í 1.500 metra hlaupi á Reykjavíkurleikunum.

Baldvin er á góðu skriði og það er stutt í næsta mót hjá honum sem fer fram í Finnlandi.

„Ég er að keppa á NM í Helsinki eftir tvær vikur og er nálægt lámörkum á EM sem ég stefni á.  Lágmörkin eru held ég 3:37 og ég hljóp á 3:39 í dag og er í góðu formi, mér leið vel í hlaupinu og ég er bjartsýnn,“ sagði Baldvin.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert