Stærðarflokkur | Stórt |
Röð innan flokks | 45 |
Landshluti | Höfuðborgarsvæði |
Atvinnugrein | Fjármála- og vátryggingastarfsemi |
Starfsemi | Stýring verðbréfasjóða |
Framkvæmdastjóri | Jökull Heiðdal Úlfsson |
Fyrri ár á listanum | 2012–2018 |
Eignir | 3.545.522 |
Skuldir | 760.101 |
Eigið fé | 2.785.421 |
Eiginfjárhlutfall | 78,6% |
Þekktir hluthafar | 2 |
Endanlegir eigendur | 24 |
Eignarhlutur í öðrum félögum | 11 |
Endanleg eign í öðrum félögum | 0 |
Vottun Creditinfo um framúrskarandi fyrirtæki skiptir sjóðastýringarfyrirtækið Stefni afar miklu máli í samkeppni fyrirtækisins um hæft starfsfólk að sögn Jökuls Heiðdals Úlfssonar, framkvæmdastjóra, sem tók við starfinu í apríl á þessu ári. Hann sat áður í stjórn félagsins frá árinu 2013.
„Að tilheyra þeim hópi fyrirtækja sem eru vottuð framúrskarandi á Íslandi skiptir okkur máli því það gerir okkur að áhugaverðari vinnustað sem er mikilvægt í samkeppninni um hæft starfsfólk en það er lykilatriði fyrir þekkingarfyrirtæki eins og Stefni. Þá skiptir vottunin einnig miklu máli fyrir viðskiptavini okkar því Stefnir er byggður á öflugum stoðum bæði hvað varðar traustan rekstur, góða stjórnarhætti og gott orðspor. Í störfum okkar hjá Stefni leggjum við áherslu á langtímaviðskiptasamband sem byggist á trausti og vottunin er einn liður í að viðhalda því trausti,“ segir Jökull.
Stefnir er stærsta sjóðastýringarfyrirtæki landsins og skipta hlutdeildarskírteinishafar tugum þúsunda en við síðasta árshlutauppgjör námu eignir í stýringu félagsins 337 milljörðum króna. Félagið hefur verið á lista yfir framúrskarandi fyrirtæki frá árinu 2012 en að sögn Jökuls hefur Stefnir sýnt fram á mikla aðlögunarhæfni og endurtekið frumkvæði í krefjandi umhverfi á undanförnum árum.
„Styrkur okkar felst í fjölbreyttri þekkingu, reynslu og hæfni starfsfólks. Árangur undanfarinna ára má einkum þakka menningunni og traustum innviðum Stefnis og þar vil ég helst nefna góðan liðsanda, áherslu á teymisvinnu, frumkvæði starfsfólks og fagleg vinnubrögð m.t.t. langtímasjónarmiða, segir Jökull.
Ávöxtun sjóða Stefnis hefur að sögn Jökuls verið með ágætum á undanförnum árum í öllum eignaflokkum. Að sögn Jökuls hefur Stefnir nokkra sérstöðu hvað varðar stærð meðal innlendra og erlendra hlutabréfasjóða auk blandaðra sjóða.
„Verðbréfa- og fjárfestingasjóðir Stefnis fjárfesta einkum í skráðum hluta- og skuldabréfum á innlendum og erlendum mörkuðum. Innan Stefnis starfar einnig teymi í sérhæfðum fjárfestingum sem rekur fagfjárfestasjóði sem meðal annars fjárfesta í óskráðum fyrirtækjum og fasteignaþróunarverkefnum,“ segir Jökull.
„Okkar sérstaða er kannski líka fólgin í því að við erum að reka á íslenskan mælikvarða stóran erlendan verðbréfasjóð, Katla Fund. Þar erum við að fjárfesta í skráðum erlendum hlutabréfum,“ segir Jökull en tekur fram að langstærstur hluti eigna í stýringu hjá Stefni fari í fjárfestingar hér á landi.
Aðspurður hvar helstu áhættuþættir liggja í starfsemi Stefnis segir Jökull að því fylgi mikil ábyrgð að taka við fjármunum frá einstaklingum, fyrirtækjum og stofnanafjárfestum til ávöxtunar.
„Heilbrigð fyrirtækjamenning og traustir innviðir eru lykilatriði í starfsemi sjóðastýringarfyrirtækja. Auk þess skiptir áhættustýring og innra eftirlit miklu máli. Stjórn Stefnis hefur lagt áherslu á og stutt við þá ábyrgu fyrirtækjamenningu sem einkennir starfsemi Stefnis. Orðspor Stefnis og traust til félagsins hefur áunnist yfir langan tíma og því þarf stöðugt að viðhalda með þjálfun og fræðslu. Starfsfólk Stefnis er mjög meðvitað um mikilvægi þess og stendur fyllilega undir því,“ segir Jökull.
Spurður út í það hvort það sé meira krefjandi að reka sjóðastýringarfyrirtæki á tímum eins og nú um stundir þar sem hagkerfið virðist vera að kólna segir Jökull að það sé ávallt krefjandi verkefni að reka verðbréfasjóði.
„Það er alltaf krefjandi að stýra verðbréfasjóðum. Við erum í samkeppni um að standa okkur vel hvort sem markaðurinn er í upp- eða niðursveiflu. En það er kannski meira krefjandi þegar markaðurinn er grunnur,“ segir Jökull.
„Mér finnst sjálfum svolítið áhyggjuefni hvað það er lítill áhugi almennt á innlendum hlutabréfum. Það eru því miður of fáir hluthafar og lítil viðskipti. Mín skoðun er sú að verðbréfamarkaðurinn sé mikilvæg stoð í hagkerfinu okkar. Það skiptir mjög miklu máli fyrir atvinnulífið að það sé virkur og góður verðbréfamarkaður með skilvirkri verðmyndun.“
„Stjórn Stefnis samþykkti stefnu um ábyrgar fjárfestingar á árinu 2018 og vinnum við nú að innleiðingu hennar. Við sjóðastýringu verðbréfa- og fjárfestingarsjóða verðum við að tryggja áreiðanleika við val á fjárfestingum sjóða með hagsmuni hlutdeildarskírteinishafa að leiðarljósi. Fullnægjandi skilningur og þekking á þeim fjárfestingarkostum sem standa sjóðunum til boða þarf að vera fyrir hendi í upphafi fjárfestingar og yfir fjárfestingartímabil hennar, þar með talin þau umhverfismál og þeir félagslegu þættir og stjórnarhættir sem hafa áhrif á samfélag okkar til skemmri og lengri tíma. Við finnum fyrir því, sérstaklega frá yngra fólki, að það setur umhverfis- og félagsleg málefni fyrir sig þegar kemur að fjárfestingum,“ segir Jökull og heldur áfram.
„Við teljum góða stjórnarhætti vera veigamikinn þátt í árangri Stefnis sem leiðandi sjóðastýringarfyrirtækis á Íslandi. Góðir stjórnarhættir eiga að stuðla að réttum hvötum til að sækja þau tækifæri sem þjóna hagsmunum fyrirtækisins, hluthöfum og almenningi, jafnframt því sem góðir stjórnarhættir auðvelda einnig stjórn að sinna eftirlitshlutverki sínu á skilvirkan hátt.“