Stærðarflokkur | Stórt |
Röð innan flokks | 149 |
Landshluti | Höfuðborgarsvæði |
Atvinnugrein | Framleiðsla |
Starfsemi | Framleiðsla á kjötafurðum |
Framkvæmdastjóri | Steinþór Skúlason |
Fyrri ár á listanum | 2012–2018 |
Eignir | 9.282.376 |
Skuldir | 3.953.458 |
Eigið fé | 5.328.918 |
Eiginfjárhlutfall | 57,4% |
Þekktir hluthafar | 10 |
Endanlegir eigendur | 26 |
Eignarhlutur í öðrum félögum | 10 |
Endanleg eign í öðrum félögum | 0 |
Aukinn innflutningur á matvöru og breyttar neysluvenjur eru að breyta landslagi á matvörumarkaði. „Félagið verður að sjálfsögðu að sjá þessar breytingar fyrir og aðlagast og þróast,“ segir Steinþór Skúlason, forstjóri SS. Félagið sé að þróa lausnir sem taki mið af þróuninni.
Í myndskeiðinu er rætt við Steinþór um stefnu, starfsemi og samfélagsábyrgð fyrirtækisins sem er í eigu 900 bænda sem eiga allir jafnan hlut en eignarhaldið gerir það einstakt á meðal íslenskra fyrirtækja.
mbl.is í samstarfi við Creditinfo framleiðir 10 myndskeið um Framúrskarandi fyrirtæki Creditinfo og áður hafa birst myndskeið um Krónuna og ORF líftækni og Ueno.