Stærðarflokkur | Meðalstórt |
Röð innan flokks | 153 |
Landshluti | Norðurland eystra |
Atvinnugrein | Byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð |
Starfsemi | Bygging íbúðar- og atvinnuhúsnæðis |
Framkvæmdastjóri | Ólafur Ragnarsson |
Fyrri ár á listanum | 2019 |
Eignir | 408.009 |
Skuldir | 264.330 |
Eigið fé | 143.679 |
Eiginfjárhlutfall | 35,2% |
Þekktir hluthafar | 2 |
Endanlegir eigendur | 2 |
Eignarhlutur í öðrum félögum | 1 |
Endanleg eign í öðrum félögum | 1 |
„Við teljum að við í byggingabransanum sem og annars staðar þurfum að fara að vanda okkur og reyna að passa upp á kolefnissporið og við ætlum ekki að láta okkar eftir liggja í því,“ segir Ólafur Ragnarsson, framkvæmdastjóri Húsheildar, en fyrirtækið byggir nú Svansvottuð raðhús í Urriðaholti í Garðabæ, sem hann segir að séu líklega þau fyrstu sem byggð eru með þeim hætti á höfuðborgarsvæðinu.
Fyrirtækið er eitt af Framúrskarandi fyrirtækjum Creditinfo og Ólafur segir það hafa komið sér á óvart hversu mikla þýðingu sá stimpill hefur haft fyrir viðskipti fyrirtækisins. Greinilegt sé að birgjar og aðrir stórir aðilar á markaði líti á vottunina sem merki um góðan og ábyrgan rekstur. Í myndskeiðinu er rætt við Ólaf um rekstur Húsheildar.
Um fimmtíu til sextíu manns starfa hjá fyrirtækinu sem var stofnað árið 2007 og hefur byggt talsvert af húsum um land allt. Svansvottuðu timburraðhúsin sem félagið byggir nú undir merkjum Vistbyggðar í Urriðaholti eru væntanleg á markað á fyrri hluta næsta árs og nánar verður fjallað um þau hér á mbl.is innan skamms.
Í samstarfi við Creditinfo sýnir mbl.is nú heimsóknir í nokkur Framúrskarandi fyrirtæki og nú þegar hafa heimsóknir í Friðheima, Stoð, Garðheima, Vörð og Völku verið birtar.