Stærðarflokkur | Meðalstórt |
Röð innan flokks | 139 |
Landshluti | Suðurland |
Atvinnugrein | Heild- og smásöluverslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum |
Starfsemi | Smásala á tölvum, jaðarbúnaði og hugbúnaði í sérverslunum |
Framkvæmdastjóri | Gunnar Bragi Þorsteinsson |
Fyrri ár á listanum | 2012–2019 |
Eignir | 312.849 |
Skuldir | 88.994 |
Eigið fé | 223.855 |
Eiginfjárhlutfall | 71,6% |
Þekktir hluthafar | 4 |
Endanlegir eigendur | 4 |
Eignarhlutur í öðrum félögum | 0 |
Endanleg eign í öðrum félögum | 0 |
TRS er rótgróið fyrirtæki á Selfossi sem hefur í áratugi veitt viðskiptavinum sínum tækniþjónustu af óvenju fjölbreyttum toga. Síðastliðin níu ár hefur það verið eitt af Framúrskarandi fyrirtækjum Creditinfo.
Í myndskeiðinu er kíkt í stutta heimsókn í höfuðstöðvar TRS á Selfossi og rætt við Gunnar Braga Þorsteinsson, framkvæmdastjóra, en hjá fyrirtækinu starfa nú 34 starfsmenn á starfstöðvum þess í Kópavogi og á Selfossi. Í grunninn skiptist starfsemin í upplýsingatækni, fjarskiptaþjónustu, raflagnir og þjónustu á öryggiskerfum og verslun.
Í samstarfi við Creditinfo sýnir mbl.is nú heimsóknir í nokkur Framúrskarandi fyrirtæki og nú þegar hafa heimsóknir í Friðheima, Stoð, Garðheima, Vörð og Völku meðal annars verið birtar.
Fleiri innslög er að finna á sérstökum vef sem er helgaður Framúrskarandi fyrirtækjum Creditinfo.