Stærðarflokkur | Meðalstórt |
Röð innan flokks | 249 |
Landshluti | Höfuðborgarsvæði |
Atvinnugrein | Heild- og smásöluverslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum |
Starfsemi | Heildverslun með heimilistæki, útvörp, sjónvörp og tengdar vörur |
Framkvæmdastjóri | Haukur Njálsson |
Fyrri ár á listanum | 2015–2019 |
Eignir | 276.815 |
Skuldir | 197.941 |
Eigið fé | 78.874 |
Eiginfjárhlutfall | 28,5% |
Þekktir hluthafar | 1 |
Endanlegir eigendur | 4 |
Eignarhlutur í öðrum félögum | 0 |
Endanleg eign í öðrum félögum | 0 |
Starfsfólkið er lykillinn að velgengni hjá fyrirtækinu Kælitækni sem hefur um áratugaskeið veitt sérhæfða þjónustu á sviði kælingar og frystingar. Haukur Njálsson framkvæmdastjóri segir að stefnan sé hiklaust sett á að stækka reksturinn hjá Kælitækni sem er eitt af Framúrskarandi fyrirtækjum Creditinfo.
Í myndskeiðinu er innlit í fyrirtækið sem er til húsa í Rauðagerði í Reykjavík.
Hjá Kælitækni eru um 20 starfsmenn og reksturinn skiptist í tvennt. Annars vegar sölu á búnaði og svo er það þjónustuhlutinn sem er veigamikill þáttur í starfseminni. Þar segir Haukur mannvalið vera lykilatriði. „Þekkingin er náttúrlega það dýrasta sem við eigum. Að geta búið til þau kerfi sem nýtast inn í framtíðina,“ segir Haukur en fyrirtækið sér stórum hluta fyrirtækja á matvælamarkaði fyrir kælingarkerfum.
Í samstarfi við Creditinfo sýnir mbl.is nú heimsóknir í nokkur Framúrskarandi fyrirtæki og nú þegar hafa heimsóknir í Friðheima, Stoð, Garðheima, Vörð og Völku verið birtar.