Stærðarflokkur | Meðalstórt |
Röð innan flokks | 146 |
Landshluti | Höfuðborgarsvæði |
Atvinnugrein | Byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð |
Starfsemi | Undirbúningsvinna á byggingarsvæði |
Framkvæmdastjóri | Berglind Benediktsdóttir |
Fyrri ár á listanum | Engin |
Eignir | 431.199 |
Skuldir | 226.030 |
Eigið fé | 205.169 |
Eiginfjárhlutfall | 47,6% |
Þekktir hluthafar | 2 |
Endanlegir eigendur | 2 |
Eignarhlutur í öðrum félögum | 0 |
Endanleg eign í öðrum félögum | 0 |
Fyrirtækið Berg Verktakar var stofnað árið 2016.
Berglind Benediktsdóttir, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, er einn yngsti framkvæmdastjóri fyrirtækis sem er á lista Creditinfo yfir fyrirmyndarfyrirtæki í ár en hún er fædd árið 1987.
„Það má í grunninn segja að þetta sé fjölskyldufyrirtæki en við Davíð, sambýlismaður minn, fórum af stað með þennan rekstur,“ segir Berglind sem útskrifaðist frá Menntaskólanum Hraðbraut og steig sín fyrstu skref sem stjórnandi hjá Berg Verktökum.
„Þetta fór hægt af stað þannig að það vannst tími til að sækja sér þekkingu og fróðleik. Það var ákveðið í upphafi að ég skyldi sjá um pappírsmálin en Davíð myndi sinna því verklega og fékk ég því framkvæmdastjórastólinn.
Í upphafi var þetta nokkuð hefðbundið; hlaupið á eftir nótum og tímaskriftum starfsmanna og séð til þess að reikningar væru greiddir á réttum tíma og að reikningar færu út tímanlega,“ segir Berglind.
En hvað gera Berg Verktakar?
„Árið 2017 fáum við það verkefni fyrir Gagnaveitu Reykjavíkur að leggja ljósleiðara í fyrirtæki í Hafnarfirði og þá fór boltinn að rúlla. Við höfum síðan sinnt ýmiss konar jarðvinnuverkefnum að langstærstum hluta fyrir Gagnaveituna, Veitur, Reykjavíkurborg, Landsnet og Vegagerðina. Á þessum árum hafa verkefnin hjá okkur verið æði fjölbreytt. Við höfum gert kaldan pott í Árbæjarlaug, vaðlaug í Laugardalnum, lagt ljósleiðara í tugi eða hundruð fyrirtækja, lagt háspennustrengi meðfram Vesturlandsvegi, gróðursett mörg hundruð plöntur og tré fyrir Reykjavíkurborg, endurnýjað leiksvæði og endurnýjað allar mögulegar veitulagnir fyrir Veitur. Á síðasta ári prófuðum við að fara aðeins út fyrir borgarmörkin og gerðum hringtorg og undirgöng á Selfossi, og er skemmtilegt að geta þess að þetta voru fyrstu undirgöngin á Selfossi. Í ár höfum við verið að brasa við að endurnýja lagnir á Vesturgötu, gera skolpdælustöð á Álftanesi, leggja lagnir á Nesjavöllum fyrir fyrirhugaða Carbfix-tilraunastöð ásamt því að byggja yfir tengivirkið í Hrútatungu sem fór illa í óveðrinu í desember 2019.“
Hvernig var að taka við stöðunni svo ung að árum?
„Í byrjun var þetta nokkuð einfalt, en þegar boltinn fór að rúlla og reksturinn að vinda upp á sig varð þetta auðvitað meira krefjandi. Árið 2018 vorum við svo heppin að fá Guðmund Hlír Sveinsson inn sem meðeigenda, og höfum við unnið gott starf saman. Einnig eigum við mjög farsælt samstarf við Fastland sem þjónustar okkur með bókhald og launamál, og er óhætt að segja að sú þjónusta hefur létt verulega undir.“
Hvað gerir fyrirtækið að fyrirmyndarfyrirtæki?
„Ég myndi segja að það væri mikill dugnaður, gott skipulag, frábært starfsfólk og sæmileg heppni á útboðsmarkaði. Svo má auðvitað ekki gleyma einstaklega góðu samstarfi hluthafa.“
Hvernig heldurðu uppi góðum starfsanda?
„Við höfum reynt að hafa þá stefnu að mynda góð tengsl við starfsfólkið okkar. Þótt kórónuveirufaraldurinn hafi væntanlega haft umtalsvert minni áhrif á okkar fyrirtæki en mörg önnur, þar sem við vinnum mest utandyra og í litlum hópum, höfum við samt ekki farið varhluta af þessu fári. Við skuldum starfsfólkinu okkar gott partý og er óskandi að við getum blásið til fagnaðar á næstunni. Þar fyrir utan er alltaf gott að geta tekið gott samtal við starfsfólkið við og við, og stutt við bakið á því þegar gefur á bátinn hvort sem það er í vinnunni eða einkalífinu,“ segir Berglind.
Hver er stefna fyrirtækisins í jafnréttismálum? Hvernig framfylgirðu þeirri stefnu?
„Jarðvinnubransinn er væntanlega einhver erfiðasti bransinn til að ná jöfnum kynjahlutföllum. Við höfum þó haft þetta á bak við eyrað. Við erum tvær konur sem störfum í fyrirtækinu, en síðastliðið sumar bættist sú þriðja við, en þó aðeins tímabundið. Það er því við ramman reip að draga en engu síður er alltaf hægt að gera betur. Við höfum grínast með að fara í jafnréttisbandalag með bókhaldsþjónustunni okkar þar sem fjöldi starfsmanna þar er svipaður og hjá okkur en kynjahlutföll öfug. Hver veit? Kannski væri sniðugt að sameina fyrirtækin,“ segir Berglind.