Róbert Guðfinnsson framkvæmdastjóri Þormóðs ramma - Sæbergs var kjörinn formaður stjórnar Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna á aðalfundi félagsins sem nú stendur yfir. Róbert fékk 734.116.607 atkvæði, eða 50,035% en Jón Ingvarsson fráfarandi stjórnarformaður fékk 733.079.089 atkvæði eða 49,964% atkvæða.