Dómsmálaráðherra undirritaði í dag nýja reglugerð um afgreiðslutíma vínveitingahúsa í Reykjavík. Samkvæmt henni geta vínveitingahús í miðborginni og þau sem standa fjarri íbúðarbyggð, að uppfylltum vissum skilyrðum, haft opið frá föstudegi til sunnudags án þess að loka.