Ellefu gamalgróin apótek munu í dag sameinast í keðju lyfjaverslana undir nafninu Lyf & heilsa.
Samkvæmt því sem fram kemur í fréttatilkynningu frá hinni nýju lyfjakeðju er stofnun keðjunnar svar lyfjaverslana víða um land við þeirri þróun sem orðið hefur á lyfja- og heilsuvörumarkaðnum undanfarin ár og er markmið stofnunarinnar fyrst og fremst að tryggja áframhaldandi samkeppni á þessum markaði. Áætluð ársvelta stofnaðila keðjunnar er 1.200 milljónir og áætluð velta næsta árs er um 1.600 milljónir. Stefnt er að því að verslanir keðjunnar verði um 15 talsins í lok ársins 2000. Þá er stefnt að skráningu fyrirtækisins á verðbréfamarkaði.