Rekstur áhafna skipa Eimskips til Færeyja

Eimskip

Eimskip mun taka upp breytt fyrirkomulag í rekstri áhafnamála á næstu vikum. Frá þeim tíma mun áhafnarekstur félagsins fara í gegnum félagið Fossar í Færeyjum sem er 100% í eigu Eimskips. Í Færeyjum rekur Eimskip eitt stærsta fyrirtæki eyjanna með um þrjá milljarða íslenskra króna í veltu, með tæplega 200 starfsmenn, fimm skip og um 25 vöruflutningabíla í innanlandsakstri.

Í fréttatilkynningu kemur fram að ástæðan fyrir þessari breytingu er það hagstæða umhverfi sem býðst í Færeyjum, með tilliti til skipskráningar og hagfells umhverfis í skattamálum sem fyrirtækjum stendur til boða. Færeysk stjórnvöld bjóða fyrirtækjum á þessu sviði endurgreiðslu á tekjuskattsgreiðslum áhafna upp á 28%.

"Í dag rekur Eimskip um 30 skip sem þjóna stórum og alþjóðlegum hópi viðskiptavina og eru um 20 af þeim flota, skip sem aldrei koma til Íslands. Í slíku alþjóðlegu rekstrarumhverfi er nauðsynlegt fyrir Eimskip að nýta þau tækifæri sem eru til staðar, hvort sem um er að ræða viðskiptatækifæri eða tækifæri til að hagræða í rekstri. Rekstur alþjóðlegs skipaflota og þar með áhafna er eitt þessara tækifæra sem hafa skapast í rekstri Eimskips, þ.e. að nýta þau samlegðaráhrif sem fylgir slíkum flota."

Eimskip hefur átt fundi með fulltrúum samgönguráðuneytis þar sem þessi ráðstöfun hefur verið kynnt. Einnig hefur verið fundað með fulltrúum verkalýðsfélaga á Íslandi þar sem gerð hefur verið grein fyrir áformum félagsins. Það er mat Eimskips að íslenskir sjómenn verði samkeppnishæfari á alþjóðlegum markaði með þessari breytingu.

Með þessari ráðstöfun er Eimskip að fara sömu leið og önnur skipafélög í Evrópu hafa farið. Færeyjar þykja bjóða upp á eitt áhugaverðasta og arðbærasta umhverfi fyrir skipafélög í dag og sífellt fleiri félög hafa nýtt sér þetta umhverfi," að því er segir í tilkynningu frá Eimskip.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK