Stilla minnkar hlut sinn í Vinnslustöðinni

Seil ehf. hefur keypt 67.116.479 milljónir króna að nafnverði í Vinnslustöðinni af Stillu ehf. á genginu 4,15 eða 4,29% hlutafjár. Eftir kaupin nemur eignarhlutur Seilar í Vinnslustöðinni 16,21%. Eftir viðskiptin nemur eignarhlutur Stillu í Vinnslustöðinni 20,71%.

Samhliða þessum viðskiptum verða uppskipti á eignarhaldi í félögunum. Eftir viðskiptin er KG hf., félag í eigu KG fiskverkunar hf., eigandi 55% eignarhluta Stillu ehf en Vinnslustöðin hf. er eigandi 45%. Samhliða þessum viðskiptum selur Vinnslustöðin eignarhluta sinn í Stillu. Söluverð eignarhlutarins er 417 milljónir króna og fæst greitt annars vegar með hlutabréfum í Vinnslustöðinni að nafnverði 53.836.000 krónur á genginu 4,15 og hins vegar í peningum, alls 193 milljónum króna. Söluhagnaður Vinnslustöðvarinnar af þessum viðskiptum nemur 65 milljónum króna. Krosseignatengsl Vinnslustöðvarinnar og Stillu hafa þar með verið rofin, að því er segir í tilkynningu.

Eigin hlutir Vinnslustöðvarinnar nema eftir viðskiptin 122.920.519 króna að nafnvirði eða sem svarar til 7,85% eignarhlutar. „Jafnframt skal þess getið að í dag, 16. júní, greiðir Vinnslustöðin hf. út arð í eigin bréfum að fjárhæð 65 milljónir króna að nafnvirði, þar af liðlega 62 milljónir króna til almennra hluthafa (tæplega 3 milljónir króna koma í hlut Vinnslustöðvarinnar sjálfrar vegna eigin hlutabréfa). Við það lækkar eigin eignarhlutur félagsins samsvarandi," að því er segir í tilkynningu til Kauphallar Íslands.

Hjálmar Kristjánsson, stjórnarmaður í Vinnslustöðinni hf., er eigandi KG fiskverkunar hf. Guðmundur Kristjánsson, varastjórnarmaður í Vinnslustöðinni, er jafnframt stjórnarmaður í Stillu ehf.

Eigendur Seilar ehf. eftir viðskiptin eru: Haraldur Gíslason, stjórnarmaður í Vinnslustöðinni, og Kristín Gísladóttir, varastjórnarmaður í Vinnslustöðinni, ásamt Lendingu ehf., einkahlutafélagi í eigu Sigurgeirs B. Kristgeirssonar, framkvæmdastjóra Vinnslustöðvarinnar, að því er segir í tilkynningu til Kauphallar Íslands.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Loka