Heimir Jónasson hefur verið ráðinn verkefnistjóri sératburða í markaðsdeild Icelandair. Heimir hefur starfað undanfarin ár hjá 365 miðlum sem dagskrárstjóri, síðast sem forstöðumaður Stöðvar 2.
Heimir stundaði nám við Kvikmyndaháskólanum í München 1991-1996 og útskrifaðist þaðan sem framleiðandi á kvikmyndum og sjónvarpsefni.