Þótt FL Group hafi dregið úr fjárfestingum sínum í erlendum flugfélögum þá telur Jafet Ólafsson, framkvæmdastjóri fjárfestingafélagsins Veigs, að útrás Íslendinga á erlenda markaði lifi enn góðu lífi þó að það muni að öllum líkindum hægja á útrásinni.
Jafet segir að aðrir liðir í útrásinni standi styrkum fótum og að hann sjái enga ástæðu til að ætla að hún sé bóla sem muni springa á næstunni.