FL Group hefur ákveðið að halda ekki áfram viðræðum við breska hugbúnaðarfyrirtækið Inspired Gaming Group (Inspired). Þann 7. september síðastliðinn staðfesti FL Group að það ætti í viðræðum við félagið um hugsanlegt yfirtökutilboð til hluthafa þess. Í ljósi núverandi markaðsaðstæðna er það ákvörðun félagsins að gera ekki yfirtökutilboð í félagið að svo stöddu.
Í tilkynningu kemur fram að FL Group mun áfram vinna með stjórn Inspired og styðja við framtíðarvöxt þess en stjórnendur FL Group telja mikil tækifæri felast í rekstri félagsins.