Stjórnendur Samskipa fagna því að niðurstaða skuli vera fengin í mál sem varðar brot Eimskips á samkeppnislögum. Rannsókn samkeppnisyfirvalda hófst árið 2002 í framhaldi af kæru frá Samskipum. Niðurstaða málsins, og viðbrögð Samkeppniseftirlitsins í framhaldinu, staðfesta að Samskip höfðu gilda ástæðu til að leggja fram kæru. Ljóst er að málið var alvarlegra en stjórnendur Samskipa gerðu sér grein fyrir á sínum tíma, að því er segir í tilkynningu frá Samskipum.
„Það kemur jafnframt á óvart hversu skipulögð og umfangsmikil þessi aðför að Samskipum var og þar með aðför að frjálsri samkeppni. Með þessum brotum á 11. grein samkeppnislaganna, sem ætlað er að vernda neytendur og tryggja heilbrigða samkeppni, var í raun ráðist gegn hagsmunum almennings og fyrirtækja í landinu.
Samkeppnisyfirvöld hafa með rannsókn sinni rækt skyldur sínar með ágætum og komið þeim skýru skilaboðum á framfæri að fyrirtæki með markaðsráðandi stöðu bera mikla ábyrgð og verða að standa undir henni," samkvæmt tilkynningu Samskipa.