Hafa brugðist við ábendingum Samkeppniseftirlitsins

Höskuldur H. Ólafsson, sem tók við stöðu forstjóra Valitor fyrir rúmu ári, áður Greiðslumiðlun, segir að félagið hafi fallist á sátt við Samkeppniseftirlitið og þegar hafi verið brugðist við öllum ábendingum þess varðandi það sem betur mætti fara í skipulagi og starfsemi fyrirtækisins. „Það er ljóst að ekki var farið eftir reglum í ákveðnum tilfellum á þessum áratug sem tekinn var til rannsóknar. Rannsóknin leiðir í ljós að hvorki söluaðilar né korthafar hafa borið skaða af þessum brotum. Í kjölfarið höfum við fengið skýrar leikreglur og ábendingar frá Samkeppniseftirlitinu sem við höfum lagað okkur að."

Valitor hefur gert sátt við Samkeppniseftirlitið vegna brota félagsins á samkeppnislögum á árunum 1995-2006. Samkvæmt sáttinni greiðir Valitor 385 milljónir króna til ríkissjóðs. Rannsókn Samkeppniseftirlitsins leiddi í ljós atriði í starfsemi Greiðslumiðlunar sem samræmdust ekki ákvæðum samkeppnislaga, að því er segir í tilkynningu frá Valitor.

 Téð brot eru allt frá samningum um sölu raðgreiðslusamninga á eftirmarkaði og posaleigu til sameiginlegra límmiða á sölustöðum án þess að formleg undanþága til þess lægi fyrir eins og skylt er. Ennfremur er fallist á það að hluti af aðgerðum Greiðslumiðlunar vegna samkeppni við danska færsluhirðingarfyrirtækið Pengeinstituternes Betalings Systemer A/S (PBS) hafi ekki verið samkvæmt samkeppnislögum. PBS er fyrirtæki í eigu dönsku viðskiptabankanna og danska Seðlabankans og hefur yfirburðastöðu á markaði í Danmörku.

Þau brot sem Samkeppniseftirlitið gerir athugasemd við eru eftirfarandi:

Brot gegn 10. grein sem fólust meðal annars í samstarfi við Kreditkort hf. og Fjölgreiðslumiðlun hf. um aðgerðir til að sporna gegn innkomu Pengeinstituternes Betalings Systemer A/S á tímabilinu 2002-2006 en einnig samskipti við Kreditkort hf. um tæknileg úrlausnarefni á umræddu tímabili.

Margar þær aðgerðir og upplýsingaskipti sem um ræðir og varða 10. gr. snérust um að auka aðgengi, skilvirkni og öryggi fyrir korthafa, en ekki var leitað tilskilinna leyfa fyrir samskiptunum eins og 15. gr. samkeppnislaga gerir ráð fyrir.

Brot gegn 11. grein fólust einkum í samkeppnishindrandi aðgerðum Greiðslumiðlunar, sem telst á tímabilinu markaðsráðandi aðili samkvæmt úrskurði, sem beindust að danska færsluhirðingarfyrirtækinu Pengeinstituternes Betalings Systemer A/S.

Með þessari sátt fellst Samkeppniseftirlitið á að málinu sé að fullu lokið gagnvart Valitor, að því er segir í fréttatilkynningu.

Kannaðist ekki við brot

Í frétt Morgunblaðsins frá þeim tíma sem húsleitir voru gerðar hjá kortafyrirtækjunum kom fram að húsleitin hjá VISA, sem stóð í rúmlega sjö klukkustundir, var afar umfangsmikil og náði til allra yfirmanna fyrirtækisins að sögn Halldórs Guðbjarnasonar framkvæmdastjóra félagsins á þessum tíma.

 Halldór sagðist í samtali við Morgunblaðið ekki kannast við að fyrirtækið hefði brotið samkeppnislög en taldi kæruna upprunna hjá danska fyrirtækinu PBS sem er í samkeppni við VISA á markaði um færsluhirðingu. „Við erum sakaðir um að hafa nýtt markaðsráðandi stöðu okkar á þessum færsluhirðingarmarkaði og hafa misnotað hana. Hvernig hef ég ekki hugmynd um," sagði Halldór. Hann var einnig ósáttur við framkvæmd húsleitarinnar. „Mér fannst ég staddur í ríki sem hefur annað réttarfar en við," sagði hann um fyrstu viðbrögð sín við atburðinum, í frétt sem birtist í Morgunblaðinu 14. júní 2006.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Loka