Lögregla í Frakklandi gerði í gærkvöldi húsleit í höfuðstöðvum franska bankans Société Générale í París en bankinn sakar miðlara, sem þar starfaði, um að hafa tapað um 4,9 milljarða evra, jafnvirði um 480 milljarða íslenskra króna, í heimildarlausum viðskiptum.
Fréttastofan AFP hefur eftir heimildarmönnum, að lögregla hafi viljað leggja hald á tölvugögn Jerome Kerviels, miðlarans sem sakaður er um fjársvikin.
Lögregla gerði einnig í gær húsleit í íbúð þar sem Kerviel hefur búið í Neuilly, úthverfi Parísar.