Hagnaður finnska flugfélagsins Finnair Group nam 26,9 milljónum evra, 2,6 milljörðum króna, á fjórða ársfjórðungi 2007 samanborið við tap upp á 20,3 milljónir evra á sama tímabili 2006. Sala Finnair jókst á fjórða ársfjórðungi um 14% á milli ára og nam 568,7 milljónum evra.
FL Group er annar stærsti hluthafinn í Finnair með 12,7% hlut, en félagið seldi í desember tæplega 12% hlut í Finnair. Sigurður Helgason situr í stjórn Finnair.
Hagnaður Finnair árið 2007 nam 101,6 milljónum evra samanborið við 13,6 milljónir evra í tap árið 2006.
Nánar um uppgjör Finnair