Kristinn Þór Geirsson ráðinn til Glitnis

Kristinn Þór Geirsson
Kristinn Þór Geirsson mbl.is/Árni Sæberg

Kristinn Þór Geirsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Fjármála og- rekstrarsviðs Glitnis og mun taka sæti í framkvæmdastjórn bankans. Kristinn Þór var kosinn í stjórn Glitnis á aðalfundi bankans í febrúar sl. en mun með ráðningunni ganga úr stjórn bankans. Í hans stað tekur Haukar Guðjónsson sæti í stjórn Glitnis.

Alexander K. Guðmundsson, starfar áfram sem framkvæmdastjóri áhættu- og fjárstýringar Glitnis.

Kristinn Þór tók nýlega við starfi forstjóra B&L, en áður hafði hann gegnt stöðu stjórnaformanns félagsins. Þá hefur Kristinn m.a. starfað sem framkvæmdastjóri Sunds ehf. og sem framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Samskipa. Kristinn Þór er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og MBA frá Wharton Business School.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK