Viðskiptaráð fagnar gjaldeyrisskiptasamningum

Viðskiptaráð segist fagna samkomulagi Seðlabanka Íslands við Seðlabanka Svíðþjóðar, Noregs og Danmerkur. Segir ráðið, að tvíhliða gjaldeyrisskiptasamningar sem þessi séu mikilvægt fyrsta skref í að efla  trúverðugleika Seðlabanka Íslands og íslenska hagkerfisins.

Þá segist Viðskiptaráð fagna þeirri tilkynningu að enn frekar verði aukið við aðgang bankans að erlendu lausafé í náinni framtíð. Einnig er ráðið ángæt með tilkynningu Geirs H. Haarde, forsætisráðherra, um fyrirhugaðar breytingar á og umbætur á skipulagi Íbúðalánasjóðs. Ráðið tekur undir þau orð ráðherra að með því sé hægt að bæta virkni peningastefnunnar til muna og þar með styrkja framtíðargrundvöll íslensku krónunnar.

„Vöxtur íslenska bankakerfisins hefur verið mikill og hraður undanfarin ár og því afar mikilvægt að innviðir og stofnanaumgjörð hérlendis taki mið af því. Í kjölfar aukinna lánalína telur Viðskiptaráð skynsamlegt að ríkissjóður leitist eftir erlendri lántöku í samstarfi við Seðlabanka Íslands til að auka gjaldeyrisforða verulega og stórefla styrk Seðlabanka Íslands.

Aðgerðir sem þessar eru ekki einungis mikilvægar til að efla traust á íslenskum fjármálafyrirtækjum heldur einnig hagkerfinu öllu. Þetta er því nauðsynlegt skref í baráttunni gegn verðbólgu og ætti að gera Seðlabanka Íslands kleift að lækka vexti fyrr og hraðar en ella," segir í yfirlýsingu Viðskiptaráðs.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Loka