Krónan veiktist í dag um 0,1%, samkvæmt upplýsingum frá Glitni. Gengisvísitala krónunnar var 146,30 í morgun en er nú 146,40. Velta á millibankamarkaði var 13,6 milljarðar. Gengi Bandaríkjadollars er 72,35 krónur, gengi breska pundsins 143,45 krónur og gengi evru er 114,10 krónur.