Segja samninginn brot á samkeppnislögum

Síminn vakti athygli Samkeppniseftirlits mánudaginn 5.janúar á ummælum sem höfð voru eftir Þórdísi J. Sigurðardóttur í fjölmiðlum þess efnis að Tali sé óheimilt að ganga til samninga við önnur fyrirtæki um aðgang að farsímanetum í 5 ár. Þetta hafði Þórdís jafnframt tilkynnt Símanum bréflega. Síminn rökstuddi í kvörtun til Samkeppniseftirlitsins að slíkt ákvæði fari gegn samkeppnislögum og fyrri ákvörðun Samkeppniseftirlits.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Símanum.

„Undanfarið hefur talsvert verið fjallað um málefni Tals, Teymis og Vodafone í fjölmiðlum. Föstudaginn 2. janúar sagði forstjóri Samkeppniseftirlitsins í fjölmiðlum að Samkeppniseftirlitið hefði málið til skoðunar," að því er segir í tilkynningu frá Símanum.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK