Fjármálaeftirlitið hefur gert athugasemd við ummæli Þórs Sigfússonar, formanns Samtaka atvinnulífins, og birtir eftirfarandi á vef sínum:
Þór Sigfússon, fyrrum
forstjóri Sjóvár-Almennra trygginga hf. segir í viðtali við Vísi hinn
7. júlí síðastliðinn: „Allar fjárfestingar voru gerðar í samræmi við
Fjármálaeftirlitið sem fékk öll gögn í hendurnar varðandi fjárfestingar
Sjóvár.“
Af þessum ummælum Þórs má skilja að haft hafi verið samráð við Fjármálaeftirlitið varðandi fjárfestingar Sjóvár. Svo var ekki.