Heimsmarkaðsverð á hráolíu hefur lækkað það sem af er degi eftir að hafa hækkað umtalsvert, eða rúma tvo dali á tunnuna, í gærkvöldi. Verð á hráolíu til afhendingar í ágúst lækkaði um 67 sent í 60,87 dali tunnan á NYMEX markaðnum í New York í dag. Í Lundúnum lækkaði verð á Brent Norðursjávarolíu um 97 sent og er 62,12 dalir tunnan.