Samkeppniseftirlitið lét í dag afrita gögn tengd Hátækni, dótturfélags Olís, sem hýst voru í tölvukerfum Olís. Segir í tilkynningu frá Olís að ekki hafi verið gerð húsleit hjá þeim en afritun gagnanna tengist rannsókn Samkeppniseftirlitsins á Símanum í síðasta mánuði.