Tap á rekstri Century Aluminium, móðurfélagi Norðuráls, nam 16,8 milljónum dala, nærri 1,9 milljörðum króna, á þriðja ársfjórðungi samanborið við 40,1 milljónir dala á sama tímabili í fyrra.
Tekjur á tímabilinu námu 279,2 milljónum dala en voru 228,7 milljónir á þriðja ársfjórðungi í fyrra.
Fyrstu níu mánuði ársins var 5,3 milljóna dala tap á rekstri félagsins en á sama tímabili á síðasta ári var 181,6 milljóna króna tap á reksrinum. Logan W. Kruger, forstjóri Century, segir í tilkynningu að álbirgðir séu áfram miklar og efnahagsástand á þróuðum heimssvæðum sé áhyggjuefni.