Þrjár konur í stjórn Framtakssjóðs

Auður Björk Guðmundsdóttir, Hrefna Ösp Sigfinnsdóttir og Linda Jónsdóttir.
Auður Björk Guðmundsdóttir, Hrefna Ösp Sigfinnsdóttir og Linda Jónsdóttir.

Auður Björk Guðmundsdóttir, Hrefna Ösp Sigfinnsdóttir og Linda Jónsdóttir hafa verið skipaðar í stjórn Framtakssjóðs Íslands. Þær hafa víðtæka reynslu úr íslensku atvinnulífi.

Úr stjórn Framtakssjóðsins hafa gengið Auður Finnbogadóttir, Guðfinna Bjarnadóttir og Vilborg Lofts. 

Auður Björk Guðmundsdóttir lauk MBA námi frá Háskólanum í Reykjavík árið 2002 og BA prófi í fjölmiðlafræði með áherslu á almannatengsl frá University of South Alabama, USA, árið 1993.  Hún hefur frá árinu 2005 verið framkvæmdastjóri sölu og þjónustusviðs VÍS.  Á árunum 2002-2005 starfaði hún sem deildarstjóri kynningardeildar Olíufélagsins og þar áður sem kynningarfulltrúi Eimskipafélags Íslands og markaðsstjóri DV.

Hrefna Ösp Sigfinnsdóttir er viðskiptafræðingur að mennt og framkvæmdastjóri Eignastýringar hjá Landsbanka Íslands.  Hún starfaði frá árinu 2007 sem sjóðsstjóri hjá Arev verðbréfafyrirtæki og á árunum 1998 - 2006 hjá Kauphöll Íslands.  Þar gegndi hún m.a. starfi forstöðumanns skráningarsviðs en var áður sérfræðingur á sama sviði.  Á árunum 1994 - 1998 var hún  forstöðumaður einstaklingsþjónustu Fjárvangs.  Hún hefur setið í stjórnum ýmissa fyrirtækja bæði hérlendis og erlendis.

Linda Jónsdóttir, framkvæmdastjóri fjármögnunar og fjárstýringar hjá Marel, útskrifaðist sem viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands árið 2001 og lauk meistaraprófi í fjármálum fyrirtækja frá Háskólanum í Reykjavík 2010.  Hún hefur einnig lokið prófi sem löggiltur verðbréfamiðlari.  Á árunum 1999-2003 var hún yfirmaður fjárstýringar hjá Eimskip og hjá Burðarás á árunum 2003-2005.  Hún starfaði við fjárstýringu og fjármögnun hjá Straumi fjárfestingarbanka á árunum 2005-2009 og gegndi þar meðal annars starfi forstöðumanns eigna- og skuldastýringar bankans.

Í stjórn Framtakssjóðsins sitja nú, auk þeirra Auðar, Hrefnu og Lindu, Ágúst Einarsson, prófessor, stjórnarformaður, Ragnar Önundarson, varaformaður Lífeyrissjóðs verslunarmanna, varaformaður, Baldur Þór Vilhjálmsson, forstöðumaður eignastýringar Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins, og  Þorkell Sigurlaugsson, framkvæmdastjóri  Fjármála- og rekstrarsviðs Háskólans í Reykjavík. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK