Sony Computer Entertainment Inc. og íslenski tölvuleikjaframleiðandinn CCP hafa gert samstarfssamning um útgáfu á tölvuleiknum DUST 514 fyrir Playstation 3 leikjatölvuna.
Tilkynnt var um samstarfið á blaðamannafundi Sony sem var haldinn í Memorial Sport höllinni í Los Angeles í nótt að íslenskum tíma.
Ráðgert er að leikurinn komi út sumarið 2012, og mun þá fylgja í kjölfarið á
EVE Online sem kom út árið 2003. Nú eru rúmlega 360.000 áskrifendur að EVE Online um allan heim.
Samkvæmt upplýsingum frá CCP steig Hilmar Veigar Pétursson, framkvæmdastjóri CCP, á svið með Jack Tretton, forstjóra Sony Computer Entertainment America, og svipti hulunni af DUST 514. Mörg þúsund áhorfendur voru í salnum, þar á meðal hundruð blaðamanna hvaðanæva úr heiminum.
Dust 514 er svokallaður fyrstu persónu skotleikur þar sem spilarar berjast sín í millum með skotvopnum, brynvögnum og flugvélum. Geta spilarar breytt þessum vopnum og hergögnum sjálfir. Inn í þennan leik blandast ákveðnir þættir úr leikjum, sem kallast rauntíma herkænskuleikir.
Þegar tilkynnt var um samstarfið í Los Angeles í nótt
var því fagnað á höfuðstöðvum CCP í Reykjavík og stærstu skrifstofum
fyrirtækisins í Sjanghæ, Atlanta og Newcastle þar sem starfsmenn horfðu á
beina útsendingu frá kynningunni í Los Angeles.
Í dag hefst síðan ein stærsta tölvuleikjaráðstefnuheims, E3 -
Electronic Entertainment Expo, sem fram fer í Los Angeles dagana 7. -
9. júní.