Stærstu bankar Evrópu neyðast til að finna nýtt fjármagn þar sem talið er að þá vanti 108 milljarða evra, yfir 17.000 milljarða króna, á næstu sex til níu mánuðum, til að standa við samning um fjármálaráðherrar aðildarríkja ESB samþykktu í þeim tilgangi að styrkja bankakerfið. Financial Times greinir frá þessu á vef sínum.
Fjárhæðin sem er sögð niðurstaða loka álagsprófs Fjármálaeftirlits Evrópu, er mun hærri tala en þeir 80 milljaðar evra sem rætt var um í vikunni. Ráðherrar frá aðildarríkjunum 27 funduðu í dag um skuldavanda Evrópu og studdu fyrrgreinda niðurstöðu eftir að reynt hafði verið að leggja mat á hversu mikið fé skorti og hvaða leiðir væru færar að því marki.
Angela Merkel, kanslari Þýskalands, og George Osborne voru bæði bjartsýn í lok fundarins og töldu að náðst hefði árangur í viðræðum ráðherranna.
Er sagt að 108 milljarðar evra eigi að tryggja að bankarnir standist kröfur um að lágmarki 9% eiginfjárhlutfall eftir þeir hafa fært niður markaðsverð skuldabréfa þeirra evruríkja sem eiga í vanda.
Endurskoðað mat á fjárþörf bankanna er þó ekki jafn hátt og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sem telur gatið vera upp á um 200 milljarða evra vegna afskrifta á ríkisskuldabréfum. Aðrir greinendur telja jafnvel að fjárþörfin geti numið um 275 milljörðum evra.